Skóladagatöl 2025-2026
Skóladagatal 2025-2026
Leikskóladagatal 5 ára kjarna í Barnaskólanum 2025-2026
Frá 1. september 2024 verða leikskóladagar að jafnaði 180 dagar á ári sem er sami fjöldi og grunnskóladagar. Leikskólar eru engu að síður opnir fleiri daga á ári en foreldrar þurfa að skrá börnin sérstaklega í vistun þá daga sem kallaðir eru skráningardagar að öðrum kosti er litið svo á að þau séu í fríi - þ.e. börn eru SJÁLFKRAFA SKRÁÐ Í FRÍ alla skráningardaga nema foreldrar skrái þau í vistun
Hægt er að velja hvert tímabil til að skrá barn í frí með því að ýta á hlekkinn fyrir ofan dagsetningarnar hér að neðan. Vinsamlegast athugið að skráning í leikskólavistun á sérstökum skráningardögum þarf að berast í síðasta lagi fyrir 20. hvers mánaðar á undan. Leikskólagjöld hvers mánaðar taka mið af skráningu á þessum dögum, gjöld lækka hlutfallslega í samræmi við fjölda frídaga.
Skólaárið 2025-2026 þarf að skrá 5 ára börn í vistun eftirfarandi daga:
20. október
21. október
29. desember
30. desember
2. janúar
Vetrarfrí í febrúar (skráning opin til 19. janúar)
19. febrúar
20. febrúar
Páskafrí - dymbilvika (skráning opin til 19. febrúar)
30. mars
31. mars
1. apríl
Sumarfrí (upplýsingar um skráningu birtast síðar)
5 ára leikskólakjarnar loka 13. júlí og frá 1. ágúst eru börnin formlega orðin grunnskólabörn.
Hér má finna upplýsingar um lögbundna skóladaga nemenda og starfsdaga kennara.