Innskráning í Karellen
news

Frábær árangur í Svakalegu lestrarkeppninni

07. 11. 2025

Samvinna heimila og skóla við að hvetja unga lestrarorma er heldur betur að skila sér! Hversu GEGGJAÐUR ÁRANGUR hjá BARNASKÓLABÖRNUM að vera í 14. sæti af 90 skólum í svakalegu lestrarkeppninni. Sannkallaðar lestrarfyrirmyndir


Frá umsjónarfólki keppninnar:

Tæplega 17 þúsund börn í 1.-7. bekk í 90 skólum um land allt tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni 2025. Lestrartölurnar eru vægast sagt svakalegar en samtals hafa öll börnin lesið í um 9,7 milljón mínútur á einum mánuði, eða í 161.539 klukkustundir. Skólar um allt land og af öllum stærðum tóku þátt í keppninni. Fámennasti skólinn með 6 nemendur og sá fjölmennasti með rúmlega 500 nemendur.

Hér birtum við 20 efstu skólana í keppninni og meðaltal lestrarmínútna á nemanda. Við birtum aðeins efstu skólana í keppninni til að draga fram lestrarfyrirmyndirnar. Tölurnar sýna að allir skólar sem skráðu sig í keppnina tóku virkan þátt og lögðu sig fram og í raun eru því allir 90 skólarnir sigurvegarar. Einn aðaltilgangur lestrarkeppninnar er að auka áhuga barna á lestri, gera lestraráhuga barna sýnilegan og vekja athygli á árangrinum sem náðist og samvinnu nemenda.

© 2016 - Karellen