Innskráning í Karellen

Frístund Barnaskólans í Hafnarfirði


Heilsdagsfrístund 2022-2023

Skráð er sérstaklega í lengda viðveru í frístund þá daga sem opið er allan daginn. Opnað verður fyrir skráningu í heilsdagsfrístund á skólaárinu þann 22. ágúst kl. 18:00. Skráning fer fram í gegnum Völu-Frístund sjá leiðbeiningar hér.

Skráning í heilsdagsvistun þarf að berast fimm sólarhringum fyrir hvern heilsdagsfrístundardag. Að undanskildri frístund milli jóla og nýárs, skráningu fyrir þá daga þarf að vera lokið fyrir 12. desember.

Í heilsdagsfrístund er opið frá 8:00-16:00 og við erum í skólafötum. Sjá hér dagskrá í heilsdagsfrístund í vetur.

Þau börn sem eru skráð í frístund alla jafna geta mætt á hefðbundnum opnunartíma frístundar frá 13:45 til 16:00. Ekki er þörf á að skrá barn sérstaklega ef það mætir á hefðbundnum tíma en við biðjum foreldra/forsjáraðila að láta vita þegar barnið kemur svo hægt sé að skrá viðveru og halda utan um fjölda.


Heilsdagsfrístund verður í boði eftirfarandi dagsetningar í vetur:

7. nóvember (foreldrasamtöl)

14. nóvember (starfsdagur kennara)

21.-23. desember (jólaleyfi) - enginn frístundaakstur

27.-30. desember (jólaleyfi) - enginn frístundaakstur

2. janúar (starfsdagur kennara) - óvíst með frístundaakstur

27. febrúar (starfsdagur kennara)

10. mars (foreldrasamtöl)

3.-5. apríl (dymbilvika)


Vinsamlegast athugið að frístund er lokuð alla rauða almanaksdaga, í vetrarfríi og eftirfarandi dagsetningar:

22. ágúst (skólasetning)

7. október (skipulagsdagur)

24. og 25. október (vetrarfrí)

23. og 24. febrúar (vetrarfrí)

19. maí (skipulagsdagur)

6. júní (skólaslit)


© 2016 - Karellen