Í dymbilvikunni hefur starfið á 5 ára kjörnum og í frístundinni verið rólegt og skemmtilegt. Hluti barna á 5 ára kjörnum er nú þegar farin í frí og á það einnig við um stóran hluta grunnskólabarna (síðasti kennsludagur fyrir páska var 22. mars).
Barnaskólinn er alveg lokaður dagana 28. mars - 1. apríl. Kennsla hefst aftur að loknu páskaleyfi þriðjudaginn 2. apríl og á það bæði við leik - og grunnskólastig.
Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska og vonum að þið hafið það gott yfir hátíðarnar.
Gleðiríkar kveðjur, Starfsfólk Barnaskólans