Innskráning í Karellen

Allir í sama liði í skólafötum Hjallastefnunnar


Skólaföt fyrir ungt fólk á öllum aldri hafa verið hluti af Hjallastefnustarfi í fjölmörg ár og setur það sterkan svip á allt okkar skólastarf. Fatnaður er merkingarbær og því telur Hjallastefnan skólafatnað mikilvægan þátt í starfinu. Þegar börnin eru í skólafötum þá tökum við frekar eftir þeim sjálfum frekar en fötunum sem þau klæðast. Samkeppni og metingur milli barna minnkar stórlega en fyrst og síðast er það gleðiefni að geta boðið uppá vandaðan fatnað sem er bæði fallegur, þægilegur og börnin geta verið sem mest sjálfbjarga. Mikil ánægja er með þetta fyrirkomulag, liðsheild skapast, foreldrar og forráðafólk sparar pening og starfið verður enn ánægjulegra í þægilegum fatnaði.

Það er gaman að vera öll í sama liðinu og eins klædd!

Allar vörur í skólafatalínu Hjallastefnunnar eru seldar í vefverslun. Hún er sundurliðuð fyrir leikskóla, barnaskóla og miðstig. Ef varan passar ekki eða er gölluð er hægt að skila og fa nýja vöru.

Nýjustu fréttir af fatamálum Hjallastefnunnar

Vefverslun

Allar upplýsingar um vöruskil er að finna á heimasíðu vefverslunar. Mikilvægt er að láta allar réttar upplýsingar fylgja með þegar komið er með föt sem á að skila í skólann.

Útprentuð eyðublöð fyrir endurgreiðsluupplýsingar er að finna á stóru töflunni í aðalanddyri skólans.

© 2016 - Karellen