Innskráning í Karellen
news

Heimsókn í Barnaskólann í Garðabæ

08. 12. 2023

Sex og sjö ára börn fóru saman í ferð með Hjallarútunni okkar að heimsækja vinkonur og vini í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ. Þar áttu þau saman dásamlegar stundir í fallegu umhverfi. Gestgjafarnir í Garðabæ voru búin að undirbúa skemmtilegt náttúrubingó fyrir börnin með það að leiðarljósi að tengjast og kynnast betur.

Börnin sungu síðan saman nokkur jólalög fyrir fuglana í skóginum og enduðu þessa fallega samveru á að fá mandarínu. Þvílíkur gleði dagur og bíða sex og sjö ára börn nú spennt eftir að fá vini og vinkonur úr Garðabæ í heimsókn til okkar í Hafnarfjörðinn.

© 2016 - Karellen