Innskráning í Karellen
news

Downs dagurinn 2019 - fögnum fjölbreytileikanum

20. 03. 2019

Nemendaráð skólans sem öll 8-9 ára börnin okkar eru í vann í morgun að plakatgerð til að auglýsa Downs daginn sem er 21. mars. Hvöttu börnin alla í skólanum til að mæta í mislitum sokkum með bros á vör og gleði í hjarta eins og þau skrifuðu á plakötin og sýna þannig stuðning í verki. Á myndinni má sjá nemendaráðið að vinnu og voru plakötin hengd víða um skólann til að minna á Downs daginn 2019.


© 2016 - Karellen