Innskráning í Karellen
news

Bóndadagskaffi og Þorrasmakk

24. 01. 2019

Í dag var Bóndadagskaffi og þorrasmakk í Barnaskólanum samkvæmt þeirri dýrmætu og skemmtilegu hefð sem skapast hefur. Erum við innilega þakklát fyrir frábæra mætingu þar sem pabbar, afar og bræður mættu og nutu góðrar samveru. Börnin buðu upp á söng, frumsamin leikrit, upplestur og tónleika af mikilli snilld og áræðni. Mæðrum, ömmum og systrum verður svo boðið í Góudagskaffi þann 19. febrúar.

© 2016 - Karellen