Innskráning í Karellen
news

Skólasetning grunnskólabarna

15. 08. 2022

Skólasetning Barnaskólans fer fram þann 22. ágúst næstkomandi. Setningin verður í salnum í Barnaskólanum og þaðan munu umsjónarkennarar fylgja sínum hópum og fjölskyldum inn á kjarna.

Tímasetningarnar eru eftirfarandi:

  • Kl. 10:45 - 7 ára börn
  • Kl. 11:30 - 8 og 9 ára stúlkur
  • Kl. 12:15 - 8 og 9 ára drengir

Hver setning verður um 30 mínútna löng. Kennarar taka á móti fjölskyldum, fara yfir það helsta fyrir veturinn, kjarnar verða opnir og starfsfólk til staðar. Við minnum á að skólaföt eru í boði þennan dag og EKKI verður um hefðbundna kennslu eða frístundastarf að ræða. Þann 23. ágúst hefst kennsla kl. 08:15 og frístund skólans opnar fyrir þau börn sem hafa fengið samþykkt pláss.

© 2016 - Karellen