Innskráning í Karellen
news

Vorferðir Barnaskólans

23. 05. 2019

Þessa dagana er ferðahugur í börnum og kennurum í Barnaskólanum. Útskriftarhópurinn okkar, 5 ára leikskólahópurinn, reið á vaðið í gær og lagði af stað í Vatnaskóg. Þar munu þau gista í tvær nætur með kennurunum sínum og njóta í ævintýralegu umhverfi. Stór kjarkæfing þar sem öll börn munu standa uppi sem sigurvegarar í lok ferðar. Í næstu viku munu 6 - 9 ára börn halda af stað í Laugar í Sælingsdal. Þar verður án efa mikið um upplifanir, vináttu og fjölbreyttar kjarkæfingar. Því er óhætt að segja að tilhlökkun og gleði sé alls ráðandi í Barnaskólanum og víðar þessa dagana.

© 2016 - Karellen