Innskráning í Karellen
news

Sumarfrístund og skólanámskeið sumarið 2021

23. 03. 2021

Sumarfrístund fyrir 6-9 ára börn (fædd 2011-2014) verður 9. júní – 2. júlí 2021. Líkt og undanfarin ár verður boðið upp á sumarfrístund fyrir börn sem lokið hafa 6-9 ára kjörnum við Barnaskólann. Starfinu verður stýrt með gleði og fagmennsku eins og starfsfólki skólans er lagið og að sjálfsögðu verða kunnugleg andlit sem þekkja starfið og börnin í skólanum.

Boðið verður upp á skólanámskeið dagana 4.-20. ágúst fyrir börn fædd árið 2015 og hefja nám á 6 ára kjörnum skólans í haust. Fyrirkomulag námskeiðsins er sérstaklega hugsað sem undirbúningur fyrir grunnskóla og munu kunnugleg andlit jafnframt sjá um skólanámskeiðið líkt og sumarfrístundina.

Allar nánari upplýsingar um dagskipulag, skráningu og verð munu berast foreldrum og forsjárfólki þegar nær dregur.

© 2016 - Karellen