Nú styttist óðfluga í páskaleyfi.
Páskaleyfi 5 ára barna hefst frá og með fimmtudeginum 1. apríl til og með mánudagsins 5. apríl.
Páskaleyfi 6-9 ára barna hefst frá og með laugardeginum 27. mars til og með mánudagsins 5. apríl. Boðið verður upp á frístundastarf í dymbilvikunni 29.-31. mars og hafa upplýsingar um skráningu borist foreldrum og forráðafólki í tölvupósti.
Hefðbundið skólastarf hefst hjá öllum þriðjudaginn 6. apríl