Kæru fjölskyldur
Næstkomandi fimmtudagur 19. desember er síðasti skóladagurinn í grunnskólanum okkar fyrir jól og munum við þá halda jólaball öll saman 5 - 9 ára börnin að hjallískum sið með gleði og kærleik - börn og kennarar mæta í sínum skólafötum. Sparifatadagurinn okkar verður svo auglýstur í byrjun janúar.
Grunnskólinn: frístund skólans er opin 20. og 23. desember kl. 8-16 - lokað er á milli jóla og nýaárs. Opnum svo aftur þann 3. janúar kl.7:30.
Leikskólakjarninn: Síðasti dagur leikskólaeiningarinnar er 30. desember. Opnar svo aftur þann 2. janúar kl. 7:30.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og samvista yfir hátíðarnar og erum full tilhlökkunar fyrir komandi nýju ári. Kærar kveðjur, starfsfólk Barnaskólans