Innskráning í Karellen
news

Leikefnið snjórinn og gleðin

08. 12. 2019

Það er óhætt að segja að það ríki mikil kátína þessa dagana sem og aðra daga í Barnaskólanum í Hafnarfirði. Snjórinn breytir útisvæðinu okkar úr fallegu haustlitunum yfir í hvítan ævintýraheim. Rassaþotur eru dregnar fram og leikefnið snjórinn ræður ríkjum í útiverunni þar sem hinar ýmsu furðurverur líta dagsins ljós og hugmyndaauðgi barnanna nýtur sín svo skemmtilega öðruvísi.

© 2016 - Karellen