Innskráning í Karellen
news

Kærleiksríkar páskakveðjur

08. 04. 2020

Kæru fjölskyldur Barnaskólans í Hafnarfirði - starfsfólk Barnaskólans sendir ykkur og börnunum kærleiksríkar þakklætiskveðjur inn í páskafríið. Nú er sannarlega tími samheldni, skynsamlegrar samvisku og samvinnu sem er ómetanlegt að finna frá ykkur. Við mælum með því að hafa kynjanámskrá Hjallastefnunnar í huga á meðan við kjörnum okkur heima - og tökum jákvæðni- og vináttulotuna til fyrirmyndar sem innihalda fallegu lykilorðin: félagsskapur, umhyggja, nálægð og kærleikur - bjartsýni og gleði.

  • Við sendum ykkur okkar allra bestu
  • Þökkum fyrir ykkar einstöku festu
  • Þið skiptið máli í okkar liði
  • Með ykkar kærleika og hjallasniði
  • Við hittumst svo öll með hækkandi sól
  • Verðum tryllt eins og kýrnar með faðmlög og gól.





© 2016 - Karellen