Innskráning í Karellen
news

Gleðilegt nýtt ár 2020

02. 01. 2020

Kæru fjölskyldur

Starfsfólk Barnaskólans óskar ykkur öllum gleðilegs árs og þakkar fyrir árið sem nú er liðið með frábæru börnunum ykkar og ómetanlegu foreldraframlagi af ýmsu tagi. Má þar helst nefna foreldrafélagið okkar og einstaklingsframlag í formi undirspils við hin ýmsu tækifæri ásamt því að við fengum góðar heimsóknir þar sem foreldrar fræddu okkur um starfið sitt. Við tökum fagnandi á móti nýju ári og hlökkum til áframhaldandi samstarfs og samvinnu með ykkur og börnunum ykkar.

Leikskólakjarni byrjaði í dag 2. janúar og mun svo grunnskólinn byrja á morgun þann 3. janúar. Frístundin verður opin að venju frá kl. 7:30-8:30 og 14-16:30. Frístundarbíllinn byrjar svo aftur akstur mánudaginn 6. janúar.

Kærar nýarskveðjur - starfsfólk Barnaskólans

© 2016 - Karellen