Kæru fjölskyldur barna í Barnaskólanum
Sveitarfélögin og almannavarnir á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að hafa skipulagsdag í leik- og grunnskólum, tónlistarskólum og frístundastarfi mánudaginn 2. nóvember vegna hertra sóttvarnareglna stjórnvalda til varnar COVID-19. Mánudagurinn 2. nóvember verður notaður til að skipuleggja starfið með kennurum og öðru starfsfólki.
Leik- og grunnskólabörn eiga því ekki að mæta í skólann mánudaginn 2. nóvember en nánari upplýsingar um skólastarfið sendum við ykkur um leið og við höfum unnið úr upplýsingum sem eiga eftir að berast okkur frá menntamálaráðherra.
Skóla- og frístundastarf í Barnaskólanum mun hefjast aftur með örlítið breyttu sniði þriðjudaginn 3. nóvember.
Hlýjar kveðjur,
skólastýrur og starfsfólk Barnaskólans