Innskráning í Karellen
news

5 ára starfið flutt formlega í Barnaskólann

31. 01. 2019

Í dag var mikil gleði og eftirvænting þegar 5 ára börnin af Hjalla fluttu formlega yfir í Barnaskólann, þar sem 5 ára leikskólastarfið mun fara fram í suðurálmu hússins. Það voru kjörkuð, hjálpsöm og glöð börn sem fluttu fötin sín, kubba, dýnur og fleira tilheyrandi með miklum metnaði! VEL GERT! Starfsfólk Barnaskólans býður börnin og kennara þeirra hjartanlega velkomin og hlakkar til samstarfs í leik og starfi.


© 2016 - Karellen